Áhugamál og tómstundir


Stökur
Sjá hér

Ljóð
Sjá hér


Skógrækt, hreyfing, lestur og kveðskapur.
Meðal áhugamála er aðallega hreyfing af ýmsu tagi. 
Auk þess að hafa lagt stund á Karate hef ég stundað jóga smávegis og einnig Pilates æfingar. Sem stendur stunda ég útihlaup og líkamsrækt.
Áhugamál eru einnig falleg föt en mér skilst að frá því að ég hafði nokkurt vit hafi ég verið hin mesta pjattrófa. Um tveggja ára aldurinn vildi ég skipta um kjóla oft á dag og harðneitaði að fara í pollagalla á róló. Áhugi á fatnaði hefur farið ögn dvínandi, líklega vegna þess að fataskápurinn er stútfullur.  

Kveðskapur er nokkur nýr af nálinni hjá mér. Ég hef verið að lesa mig til um bragarhætti og prófa mig áfram. Mér finnst gaman að raða saman orðum og get gleymt mér lengi yfir þeirri iðju. Hversu góð ég er í þessari list er best að segja sem minnst um.  Ég hef þó fengið nokkurt hrós frá velviljuðu fólki.

Félagasamtök
Einn dásamlegur félagsskapur sem ég hef verið svo heppin að vera hluti af er
Rótarýklúbbur Reykjavík-Austurbær en í hann gekk ég árið 1998. Þar hef ég gengt trúnaðarstörfum verið m.a. stallari í stjórn og formaður Félagavalsnefndar. Frá og með júlí næstkomandi er ég verðandi forseti og David Pitt tekur við forsetaembættinu. Af honum tek ég við því sumarið 2010.

Íbúasamtökin Betra Breiðholt er annar góður félagsskapur sem ég hef tengst og sit ég í stjórn þeirra samtaka. Markmiðið er að gera Breiðholtið að æ betri stað til að búa á fyrir fjölskyldur sem það kjósa. Ég gegni varaformennsku í ÍBB frá síðasta aðalfundi sem haldinn var í desember 2008. 

Breiðholtið 1
Æ betri byggð,
Breiðholtið er.
Skógar, Stekkir og Seljahverfið.
Í efra og neðra,
Hólar, Berg og Bakkarnir.
Íbúar margir í Mjóddinni mætast.

Breiðholtið 2
Æ betri byggð,
Breiðholtið er.
Stekkir, Selin og Skógar.
Hólar, Berg og Bakkar.
Breiðholtið, Efra og Neðra,
Íbúar margir í Mjóddinni makka.



Skógrækt
Meðal áhugamála er uppgræðsla og skógrækt á landi okkar hjóna á Rangárvöllum. Þar hefur farið fram ræktun í 18 ár. Um 30 þúsund plöntum hefur verið plantað og er ekkert lát þar á.  Í sumar verður lögð lokahönd á byggingu sumarhúss á svæðinu sem gerir veruna þar enn skemmtilegri. Arkitekt hússins er sonurinn Þorleifur Jónsson sem lauk arkitekarnámi sínu frá Arkitektarskólanum í Árósum um síðustu áramót. Fyrstu verkið þegar tekur að vora er að ganga frá rotþró og setja upp eldhúsinnréttingu.

Hreyfing
Helsta áhugamál mitt undanfari 3 ár er Karate. Í þeirri íþrótt er ég nú með 3 KYU  sem er fyrsta brúna beltið af þremur og er þar með hafin undirbúningurinn fyrir svarta beltið. Ég hef reyndar ekki verið dugleg að sinna Karate upp á síðkastið en þess í stað látið duga að hlaupa úti, fara í líkamsrækt og stunda Pilates æfingar.

Aðeins meira um Karate.
Röðin á beltunum er:
hvítt = byrjendur,- gult,- appelsínugult,- rautt,- grænt,- blátt,- fjólublátt, því næst 3 brún  belti   (1. kYU, 2. KYU og 1. KYU). Eftir það kemur svarta beltið sem skiptist einnig í 3 stig: fyrsta, annað og þriðja DAN.

Hvað er Karate og hvaða ávinningur fæst með því að stunda Karate?
Orðið karate merkir “tóm hönd” og vísar til japanskrar bardagalistar. Tækni í karate skiptast aðallega í fernt: högg, stöður, spörk og varnir. Hefð er fyrir því í flestum löndum að tækniheiti og stöður beri japönsk heiti. Það gerir það að verkum að engu máli skiptir frá hvaða landi þjálfarar koma eða hvaðan iðkendur koma; allir geta skilið hvað um er að ræða.

Karate tekur til margra ólíkra þátta í tilveru þess sem íþróttina stunda. Iðkun karate reynir til að mynda á marga ólíka vöðva líkamans suma hverja sem í daglegu lífi eru ekki mjög virkir. Karate reynir sér í lagi á vöðva í fótleggjum og lærvöðva.  Næst skal nefna þjálfun andardráttar en með réttri öndun eykst úthald og almenn vellíðan að sama skapi. Sá sem leggur stund á Karate öðlast aukna sjálfsstjórn og aukinn viljastyrk. Aukinn viðbragðsflýtir er enn eitt sem fæst með því að stunda Karate. Þeir sem hafa einna mest áhuga á almennri líkamlegri hreyfingu eru sem sagt ekki sviknir af því að æfa þessa íþrótt.

En víkjum nú að öðrum einkennum Karate. “Virðing” og “prúðmennska” er samofin í uppruna karate. Í karate er þess vegna gerð krafa um að iðkendur komi fram af kurteisi og yfirvegun jafnt gegn “andstæðingi” sínum sem öðru fólki. Eitt helsta merki í karate um að sýna ávallt kurteisi og virðingu eru hneigingar.  Þeim sem iðka karate ber að hneigja sig fyrir kennara sínum fyrir og eftir æfingar og fyrir “andstæðingi sínum” bæði fyrir og eftir hverja tækni. Allir hneigja sig þegar þeir koma inn í æfingasalinn og einnig þegar þeir yfirgefa salinn.