Greinar og pistlar á pressan.is

05.okt. 2009 - 08:36 Kolbrún Baldursdóttir

Á geðveikum nótum

Umfjöllunarefni þáttarins Í nærveru sálar í kvöld, mánudaginn 5. október, á ÍNN verður bókin Geðveikar batasögur. Útgefandinn og aðstandandi bókarinnar, Herdís Benediktsdóttir er gestur þáttarins ásamt Ragnheiði Jonnu Sverrisdóttur og Bergþóri Böðvarssyni en þau eru jafnframt að undirbúa dagskrá Alþjóða geðheilbrigðisdagsins 10. október nk. Dagskráin er metnaðarfull og munu fjölmargir aðilar sem þjónusta fólk með geðraskanir kynna starfsemi sína á Geðgóðum degi í Mjóddinni.
01.okt. 2009 - 10:43 Kolbrún Baldursdóttir

Tímabært að Fréttablaðið birti minningargreinar

Það er mat margra sem komnir eru fram á og yfir miðjan aldur að sá hluti Morgunblaðsins sem hvað erfiðast sé að láta framhjá sér fara sé minningargreinarnar. Takist ekki að fylgjast með andlátstilkynningum eða skanna minningargreinar reglulega sé ávallt sú hætta fyrir hendi að andlát gamalla vina, kunningja eða fólks sem tengist vinum og vandamönnum fari einfaldlega framhjá manni.Pínlegar aðstæður geta skapast þegar spurt er t.d. „hvernig hefur mamma þín það?" og viðkomandi svarar: „hún er látin." Til að fyrirbyggja þetta vilja margir, og þá sérstaklega þeir sem komnir eru á þann aldur að þeir eru farnir að sjá á eftir jafnöldrum yfir móðuna miklu, fletta minningargreinahluta Morgunblaðsins helst daglega.
29.sep. 2009 - 20:29 Kolbrún Baldursdóttir

Mér er gróflega misboðið

Afsakið orðbragðið en eftir að horfa á Kastljósið og viðtalið við Helga Felixson situr maður með óbragð í munninum.
28.sep. 2009 - 08:18 Kolbrún Baldursdóttir

Hefurðu áhyggjur?

Út er komin bókin Hvað get ég gert við of miklar áhyggjur? Bókin er fyrir börn til að sigrast á kvíða. Bókin er ekki síður ætluð foreldrum til að þau geti sem best hjálpað börnum sínum til að sigrast á kvíðapúkanum.
26.sep. 2009 - 09:49 Kolbrún Baldursdóttir

Það neyðir enginn Mogganum upp á þig

Að ákveða hvaða dagblað eða tímarit maður kaupir er val hvers og eins. Því er reyndar ekki alveg þannig farið með aðra fjölmiðla samanber Ríkisútvarpið, en fyrir það þurfa allir að borga.
24.sep. 2009 - 16:07 Kolbrún Baldursdóttir

Sérsveitarhugmyndin í eineltismálum

Hér er sett fram hugmynd um hvernig hægt er að virkja utanaðkomandi fagteymi til að leysa eineltismál sem skóli ræður ekki við að leysa.
21.sep. 2009 - 09:10 Kolbrún Baldursdóttir

Skyggnst inn í heim lesblindra í máli og myndum

Aldrei er nógsamlega talað um málefni lesblindra. Það vita kannski ekki allir að það eru til fjölmörg afbrigði af lesblindu. Um er að ræða röskun sem hefur misalvarleg áhrif og afleiðingar á þá sem við hana glíma.
19.sep. 2009 - 10:16 Kolbrún Baldursdóttir

Hagsmunaárekstur eftir allt saman

Eins og vitað er hefur settur Umboðsmaður Alþingis, Róbert Spano lagaprófessor, einnig gengt formennsku nefndar sem rannsakar starfsemi  vist- og meðferðarheimila fyrir börn á vegum ríkisins og sérskóla, sem áður voru starfandi.  Enda þótt allt fram til þessa hafi ekki verið hægt að sjá í fljótheitum sýnilega hagsmunaárekstra milli þessara tveggja hlutverka  þá virkaði það alltaf sérkennilegt að Umboðsmaður Alþingis gegndi einnig formennsku opinberrar nefndar sem þessarar.
18.sep. 2009 - 10:59 Kolbrún Baldursdóttir

Sprengjupistlar Agnesar Bragadóttur

Agnes Bragadóttir hefur að undanförnu skrifað greinar eða réttara sagt ætti frekar að segja pistla í Morgunblaðið.  Pistlar hennar valda ítrekað sterkum viðbrögðum oftast neikvæðum.  Í kjölfarið berast Morgunblaðinu  röð greina sem eru svargreinar við pistlum Agnesar. Flestar svargreinanna eru  varnargreinar frá fólki sem finnst hún t.d. hafa verið gróflega ókurteis eða fullyrðir að hún fari með rangfærslur jafnvel dylgjur.
17.sep. 2009 - 11:00 Kolbrún Baldursdóttir

Skeytum ekki skapi á börnum okkar

Ég vil í þessum pistli leggja sérstaka áherslu á  hversu mikilvægt það er að foreldrar skeyti ekki skapi sínu á börnunum. Börnin eru ekki stuðpúðar fyrir geðvonsku eða pirring foreldra sinna.
14.sep. 2009 - 10:18 Kolbrún Baldursdóttir

Viðgengst einelti á Alþingi?

Viðgengst einelti á Alþingi? Það fullyrti Birgitta Jónsdóttir, þingmaður Borgarahreyfingarinnar í aðdraganda atkvæðagreiðslu ESB frumvarpsins.
12.sep. 2009 - 19:22 Kolbrún Baldursdóttir

Búningsklefafærni 6 ára barna.

Af ýmsu er að huga þegar barn byrjar grunnskólagöngu. Góð byrjun eykur líkur á því að barninu farnist vel öll grunnskólaárin. Jákvætt viðhorf þess til nemandahlutverksins og skólagöngunnar er sá þáttur sem líklega vegur hvað þyngst bæði til lengri og skemmri tíma.
11.sep. 2009 - 11:25 Kolbrún Baldursdóttir

Skuldir stóreignamanna afskrifaðar?

Manni kann að finnast eitt og annað ósanngjarnt um þessar mundir í okkar annars ágæta samfélagi. Þó tekur steininn úr þegar fréttir berast af afskriftum skulda stóreignamanna svo sem fyrrum bankamanna og bankastjóra sem vitað er að eiga stóreignir bæði hérlendis og erlendis.
09.sep. 2009 - 08:35 Kolbrún Baldursdóttir

Er starf Umboðsmanns Alþingis ekki fullt starf?

Það er sérkennilegt að sjá sitjandi Umboðsmann Alþingis sinna svo viðamiklu öðru starfi svo sem að vera formaður nefndar sem rannsakar vistheimili.
08.sep. 2009 - 14:39 Kolbrún Baldursdóttir

Siðferðisbrot séra Gunnars

Siðferðisbrot séra Gunnars gætu orðið til þess að hann eigi ekki afturkvæmt i starf sitt. Sýknun jafngildir ekki sakleysi, alla vega ekki í hugum og hjörtum allra.